Tækniaðstoð fyrir eldri borgara
Ég býð upp á persónulega tækniaðstoð við tölvur, snjallsíma, spjaldtölvur, internetið, samfélagsmiðla og fleira. Ég er rafeindavirkjameistari og tölvunarfræðingur með víðtæka reynslu.
Ertu að leita að aðstoð fyrir foreldra þína eða aðra aðstandendur? Þú getur hiklaust haft samband fyrir þau.
Heimsóknargjald (60 mínútur innifaldar): 15.000 kr.
Er oftast við símann:
- Mánudaga – fimmtudaga
- 17:30–21:00
- Laugardaga
- 10:30–16:00
Símsvari þess utan.
Um mig
Ég heiti Einar Ársæll Hrafnsson og hef starfað við rafeindaþjónustu, tölvumál og upplýsingatækni í yfir 30 ár. Er menntaður rafeindavirkjameistari og tölvunarfræðingur. Ég ræði tæknimál á skiljanlegri íslensku. Finnst mjög gefandi að geta reddað smávandamálum og tala nú ekki um ef mér tekst að hjálpa fólki að verða sem mest sjálfbjarga í notkun á tæknilegum tólum.
Tækniaðstoð í boði
-
Spjaldtölvur og snjallsímar
Uppsetning og aðstoð með spjaldtölvur og snjallsíma.
-
Tölvur og tölvupóstur
Aðstoð með tölvur og tölvupóst (netfang), lykilorð og fleira.
-
Nettengingar
Aðstoð við internettengingar, netvandamál og þráðlaus net (WiFi).
-
Tengingar á tækjum
Aðstoð við tengingar á ýmsum tækjum við tölvur, t.d. prentara, skanna, lyklaborð og mýs.
-
Ýmislegt annað
Aðstoð við allskyns tæki og tæknimál almennt. Víðtæk reynsla.
Reynsla viðskiptavinar
Alla mína starfsævi hef ég notað tölvur af einhverju tagi, við vinnu mína og áhugamál, allt frá fyrstu tölvu háskólans, IBM 1620. Ég náði framan af að viðhalda þekkingu minni á forritum og tölvum eftir því sem þau þróuðust. Þar kom að ég staðnaði og fór að lenda í vandræðum við notkun á tölvum og tölvutengdum tækjum. Um svipað leyti kynntist ég Einari Hrafnssyni sem þá var orðinn vel kunnugur þessum tækjum og ég fór að spyrja hann ráða. Það brást aldrei að hann gat leyst úr vanda mínum. Síðan hef ég ekki þurft að hafa áhyggjur af tölvu- eða tæknivandamálum. Það er frábært að hafa aðgang að svo traustum og góðum leiðsögumanni sem Einar er.
Algengar spurningar
- Hvaða svæði er þjónustað?
- Heimsóknir eru í boði á höfuðborgarsvæðinu.
- Hvað má búast við að heimsókn taki langan tíma?
- Það fer eftir umfangi hverju sinni. Það kemur oft á óvart hvað hægt er að gera mikið á þeirri klukkustund sem innifalin er í heimsóknargjaldinu. Stilla ýmislegt, tengja eitthvað tæki. Taka út hvað þarf að gera.
- Fæ ég reikning?
- Já — að sjálfsögðu. Hér er allt eins og á að vera. Reikningurinn kemur frá fyrirtækinu Sérlausnir ehf. sem er félag í minni eigu.
- Hvernig greiði ég?
-
Það er hægt að greiða á ýmsan hátt:
- með millifærslu
- með peningum
- með greiðslukorti (er með posa)
- með greiðslukorti í gegnum heimasíðu
Dæmi um verkefni
Hér eru nokkur dæmi um það sem aðstoðað hefur verið með.
- Viðskiptavinur með nýja tölvu. Var í vandræðum með að tengja prentarann við hana. Því var reddað.
- Stýrikerfið í tölvu viðskiptavinar uppfært úr Windows 10 yfir í Windows 11.
- Apple TV hjá viðskiptavini hafði af einhverjum sökum alveg núllstillt sig. Allt sett upp frá grunni. Öll öpp sem voru áður í notkun sett upp og stillt þannig að allt virkar vel.
- Í heimsókn til viðskiptavinar kom í ljós að þráðlaust netsamband í húsinu var frekar slappt. Húsið stórt og bara einn netpunktur frá þjónustuveitanda. Farið var í að finna hentugan búnað, setja hann upp og stilla tæki þannig gott netsamband næðist um allt hús.
- Aðstoða við stillingar á 4 símum á heimilinu. Uppsetning á tölvupósti og samfélagsmiðlum. Aðstoð við að setja upp Auðkennis appið (rafræn skilríki).
- Viðskiptavinur með nýja tölvu. Hjálpað til við að kaupa áskrift að Office pakka. Hann settur upp í tölvu. Tölvupóstur settur upp í Outlook og stilltur rétt.
Sjá fleiri dæmi
- Einhver óprúttinn hafði komist inn hjá viðkomandi og rótað í öllu. Búið að rífa nokkur tæki úr sambandi og hvorki tölvur né sjónvarp virkaði eins og til var ætlast. Farið var yfir tengingar á tækjum og tengt eins og þarf að vera. Stillingar skoðaðar þannig að tölvur, net og sjónvarp virkuðu.
- Netflix aðgangur settur upp í sjónvarpi og síma viðskiptavinar.
- Stillingar á prentara lagaðar ásamt því að lagfæra heimasímasamband hjá viðskiptavini. Stuðningur við Windows 10 stilltur á framhald til að gefa viðskiptavini svigrúm til að íhuga tölvukaup.
- Nýr router frá Sýn settur upp hjá notanda. Tölva stillt til að ná sambandi við þráðlaust net.
- Windows 10 skráð í áframhaldandi stuðning til að gefa viðskiptavini svigrúm til að finna hentuga tölvu til að taka við af þeirri gömlu.
- Póstforrit sett upp í tölvu viðskiptavinar og allt látið virka þannig póstur skili sér í bæði síma og tölvu.
- Aðstoð við að skipta um greiðsluupplýsingar í Netflix í sjónvarps appi. Nokkrar myndstillingar í sjónvarpi lagaðar svo fari betur í augu viðskiptavinar.
- Hjálp við að tengja þráðlaust lyklaborð og mús við nýja tölvu. Uppsetning á iCloud og OneDrive í tölvunni.
- Þráðlaus tenging við prentara hafði hætt að virka eftir að skipt var um internetveitu. Allt stillt svo færi að virka aftur.
- Aðstoð við að setja efni inn á samfélagsmiðla.
- Sími yfirfarinn. Uppfærsla sett inn. Sambandsleysi í snúru við sjónvarp athugað og lagfært.
- Aðstoð við að koma efni inn til fjölmiðla á réttu formi.
- Tveir nýir símar á heimilinu. Aðstoð við að stilla þá, tengjast samfélagsmiðlum og gera tölvupóst kláran.